11.12.2006 | 20:26
Systur á skautum
Fór með systur mínar á skauta á TM skautasvellinu á Ingólfstorgi. Algjör snilld! Stóra systir var víst ekki alveg nógu kúl með hjálminn, hélt að Bogey ætlaði aldrei að hætta að hlæja að mér, ég var eins og sveppur sagði hún! Hehe gaman að því... En já þetta er mjög sniðugt, maður getur leigt skauta þarna á 300 kall og auðvitað verður maður að fá hjálm líka, það er skylda að vera með svoleiðis Verð að setja inn myndir af þeim hérna á svellinu
Við Heiða litla(hehe...)bjuggum til konfekt um helgina, alveg ótrúlega flott hjá okkur. Það var líka einum of gott, maður þarf eiginlega að búa til meira svo það verði eitthvað til á sjálfum jólunum! Hehe djók...
Ég var ekki tvöfalt í vinnunni í dag,mjög ánægjulegt! Ég kom heim og snérist í kringum sjálfa mig, vissi ekkert hvað ég ætti af mér að gera. Að lokum ákvað ég að mála piparkökur, voða flottar hjá mér
Lokaþátturinn í So You Think You Can Dance er í kvöld Á eftir að sakna þess að horfa á þetta, elska þessa þættiiiii!!
13 dagar til jóla ...Og þrjár jólagjafir eftir
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.